Karlakórinn
Karlakórinn

Mannlíf

  • Fræðsluskilti sett upp í Vogum
    Skjáskot af hluti eins skiltanna.
  • Fræðsluskilti sett upp í Vogum
    Hilmar Egill Sveinbjörnsson
Þriðjudagur 19. ágúst 2014 kl. 09:18

Fræðsluskilti sett upp í Vogum

- í tengslum við nýafstaðna Fjölskylduhátíð.

Á nýafstaðinni fjölskylduhátíð í Sveitarfélaginu Vogum voru sett upp fjögur ný fræðsluskilti. Á skiltunum er að finna sögulegan fróðleik um áhugaverða staði í sveitarfélaginu. Textinn á skiltunum er bæði á íslensku og ensku, auk þess sem nokkrar ljósmyndir prýða hvert skilti.

Á skiltunum er einnig QR kóði sem unnt er að skanna á snjallsíma, og opnast þá vefsíða með frekari upplýsingum um viðkomandi stað. Skiltin eru staðsett við Arahólsvörðu og Aragerði, Eyrarkotsbakka, Stóru-Voga og Sæmundarnef.

Framkvæmdin hlaut styrk úr Menningarsjóði Suðurnesja auk þess sem sveitarfélagið styrkti verkefnið. Hilmar Egill Sveinbjörnsson kennari, landfræðingur og söguáhugamaður var hvatamaður og umsjónarmaður verkefnisins.

Stærri upplausnir af skiltunum má sjá hér.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024