Public deli
Public deli

Mannlíf

Ár í lífi Arnars - magnað myndband
Þriðjudagur 4. apríl 2017 kl. 10:15

Ár í lífi Arnars - magnað myndband

Tók upp tvær sekúndur á dag - fæðing frumburðarins hápunkturinn

Njarðvíkingurinn Arnar Stefánsson tók upp allt árið 2016 á myndband en það var merkilegt fyrir margra hluta sakir. Arnar hefur þann háttinn á að taka bara upp tvær sekúndur á dag af alls kyns atburðum. Allt frá fæðingu frumburðarins, frá uppvaskinu eða bíóferð með vinum. Þegar allar þessar sekúndur eru settar saman þá er útkoman magnað myndband sem lýsir lífi venjulegs Íslendings ótrúlega vel.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Arnar segist oftast taka upp bara þetta eina skipti á dag en stundum verða þetta 3-4 myndbönd á dag, allt fari það eftir því hversu viðburðarríkur dagurinn er. Arnar viðurkennir að stundum geti verið erfitt að velja bara eitt myndband t.d. þegar fjölskyldan er á ferðalagi. „Þá gerist svo mikið á hverjum degi, en þá reyndi ég bara að velja myndband sem lýsti deginum sem best og hjálpaði mér að muna sem mest eftir öllum deginum.“

Fyrir þremur árum gerði Arnar samskonar myndband sem vakti nokkra athygli. Myndböndin eru auðvitað mjög persónuleg þar sem um er að ræða daglegt líf vina, fjölskyldu og samstarfsfélaga.

„Mér fannst ekkert mál að deila þessu með fólki, ég var búinn að gera þetta einu sinni áður fyrir árið 2013 og þá var það aðeins meira mál að opna fyrir lífið mitt svona. Viðbrögðin sem ég fékk við myndbandinu þá gerði þetta einhvern vegin eðlilegra. Fólk ýmist sagði við mig að ég ætti fullkomið líf, sem ég leiðrétti á stundinni, og aðrir sögðu við mig að lífið mitt væri rosalega venjulegt. Svo er maður náttúrulega með það á bakvið eyrað að þetta sé að fara í birtingu, því reyni ég bara að taka ekki neitt vafasamt upp, þó svo að konunni finnist sum myndböndin af henni vera alveg á línunni,“ segir Arnar og hlær.

Safnar efni fyrir jarðarförðina

Talverður tími fer í að púsla svona myndbandi saman en Arnar vann statt og stöðugt að því. „Maður tileinkar sér allskonar flýtileiðir líka núna þegar maður er búinn að vera að vesenast í þessu í 2 ár samtals. Þetta er orðið alveg vel góður partur af lífinu mínu núna og flestir hættir að kippa sér of mikið upp við það þegar ég held allt í einu á símanum mínum að taka upp.“ Arnar er hvergi nærri hættur og sér fyrir sér að eiga orðið ansi gott safn myndbanda þegar yfir lýkur.

„Ég tók þá ákvörðun að halda bara áfram að gera þetta, mér þykir svo ótrúlega falleg tilhugsun að ímynda mér 3-4 ár rúlla á einhverjum skjávarpa í brúðkaupinu og ég tala nú ekki um jarðarförina þegar ég verð vonandi kominn með yfir tíu klukkustundir af efni ef ég næ meðal aldrinum hjá íslenskum karlmanni, það verður eitthvað maraþon fyrir greyið gestina.“