Íþróttir

Rafn og Snorri áfram í Njarðvík
Þeir Rafn og Snorri eru báðir fyrrum leikmenn liðsins.
Mánudagur 8. október 2018 kl. 09:11

Rafn og Snorri áfram í Njarðvík

Rafn Markús Vilbergsson og Snorri Már Jónsson munu áfram þjálfa lið Njarðvíkinga í fótboltanum næstu tvö árin, en samningar náðust um helgina. Félagarnir sem enduðu í sjötta sæti Inkasso deildarinnar með liðið, halda því góðu starfi áfram. Undirbúningur fyrir næsta tímabil er að hefjast um næstu mánaðarmót og er nú verið að vinna í leikmannamálum að því er fram kemur á heimasíðu félagsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024