Íþróttir

Öll Suðurnesjaliðin töpuðu
Föstudagur 3. september 2010 kl. 13:13

Öll Suðurnesjaliðin töpuðu


Keflvíkingar steinlágu fyrir ÍR á Reykjanes Cup mótinu sem hóft í gær, en leikið var í Röstinni í Grindavík. Lokatölur urðu 89-66 fyrir ÍR. Snæfell sigraði Njarðvík 102-92 og Fjölnir sigraði Grindavík naumlega,101-98.

Körfuknattleiksdeildir Grindavíkur, Keflavíkur og Njarðvíkur standa fyrir mótinu annað árið í röð yfir Ljósnæturhátíðina í Reykjanesbæ.

Leikið eru í þremur húsum á þrem dögum og hefst mótið í Grindavík. Þau lið sem standa best að vígi eftir tvo leiki leika til úrslita. Hin liðin munu leika um þriðja og fimmta sæti.

Næstu leikir eru sem hér segir:

Föstudagur 3. september í Keflavík:
Kl. 17.00 Keflavík - Njarðvík
Kl. 19.00 Snæfell - Fjölnir
Kl. 21.00 Grindavík - ÍR

Sunnudagur 5. september í Njarðvík:
Kl. 14.00 leikur um 5. sætið
Kl. 16.00 leikur um 3. sætið
Kl. 18.00 Úrslitaleikurinn

Mynd úr safni

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024