Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkur

Íþróttir

Natasha Anasi framlengir við Keflavík
Jónas Guðni, framkvæmdarstjóri Keflavíkur ásamt Natöshu.
Mánudagur 22. janúar 2018 kl. 14:05

Natasha Anasi framlengir við Keflavík

Natasha Anasi, einn reyndasti leikmaður kvennaliðs Keflavíkur í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Natasha eignaðist barn í júní 2017 og kom því aðeins við sögu í þremur síðustu leikjum Keflavíkur á s.l. tímabili.Natasha kom til Keflavíkur frá ÍBV, þar sem hún var lykilmaður í vörn liðsins í þrjú sumur og var m.a. valin í lið ársins í Pepsi- deildinni sumarið 2016. Þetta kemur fram á keflavik.is.

Auk þess að leika með liðinu mun Natasha koma að þjálfun yngri flokka kvenna og mun hún gegna lykil hlutverki hjá Keflavík og vera mikilvægur hlekkur á komandi tímabili.

Public deli
Public deli