Íþróttir

Marko Blagojevic íþróttamaður ársins í Vogum árið 2017
Miðvikudagur 3. janúar 2018 kl. 09:41

Marko Blagojevic íþróttamaður ársins í Vogum árið 2017

Knattspyrnumaðurinn Marko Blagojevic var valinn íþróttamaður ársins í Vogum árið 2017. Marko var lykilmaður í liði Þróttar Vogum sem tryggði sig upp í 2. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þetta kemur fram um val á íþróttamanni Voga.

Marko er fæddur 1985 í Serbíu, nú búsettur í Vogum. Hann var í sumar lykilmaður í liði Þróttar í Vogum sem tryggði sig upp í 2. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins. Marko spilaði í vörn og fékk liðið á sig næst fæst mörkin í deildinni. Hann er öruggur á bolta, með frábærar staðsetningar og góðar sendingar, mikill félagsmaður og góð fyrirmynd. Ferill Marko á Íslandi er á þá leið að hann lék með Víði Garði í 2. deild 2008 – 2009;  Vöslungi í 2. deild og 1. deild. 2012 – 2013;  KF Í 2. deild 2014;  Magna Grenivík í 2. deild 2016;  og svo Þrótti Vogum nú árið 2017.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá voru einnig veitt hvatningarverðlaun, en þau eru veitt  iðkendum á aldrinum 12 – 16 ára sem eru áhugasamir, með góða ástundun, sýna góða hegðun innan vallar sem utan, góðir félagar og teljast vera góðar fyrirmyndir annarra unglinga.
Að þessu sinni fá hvatningarverðlaun:
Dagbjört Kristinsdóttir – dansari – fædd 2004.
Jóhann Jakobsson – júdómaður – fæddur 2005.
Jón Gestur Ben Birgisson – knattspyrnumaður – fæddur 2001.
Lið Stóru-Vogaskóla í skólahreysti 2017 fékk einnig verðlaun við athöfnina.

Val á íþróttamanni ársins er samstarfsverkefni Frístunda og menningarnefndar, íþróttafélaga í sveitarfélaginu Vogum og íbúa sveitarfélagsins. Í ár voru þrír öflugir íþróttamenn tilnefndir: Adam Árni Róbertsson, knattspyrnumaður, f. 1999, leikur nú með Keflavík, Emil Barja, körfuknattleiksmaður, f. 1991, leikur með Haukum, og Marko Blagojevic – knattspyrnumaður, sem leikur nú  með Þrótti, Vogum.