Íþróttir

Grindvíkingar lágu fyrir meisturunum
Fimmtudagur 30. október 2014 kl. 10:24

Grindvíkingar lágu fyrir meisturunum

Slæm hittni kostaði þær gulklæddu

Íslandsmeistarar Snæfells sóttu öruggan sigur í Grindavík í gær, þar sem lokatölur urðu 52-68, gestunum í vil. Leikurinn hófst með nokkru jafnræði en í öðrum leikhluta skildu leiðir. Þá skoruðu Grindvíkingar aðeins sex stig gegn 14 frá Snæfellingum. Á lokasprettinum reyndust sterkir Snæfellingar svo betri og unnu að lokum þægilegan sigur. Grindvíkingar söknuðu Maríu Ben Erlingsdóttur í leiknum en hún er stödd erlendis. Eins var Rachel Tecca ekki 100% heil þar sem hún er að glíma við meiðsli.

Grindvíkingar voru að hitta illa í leiknum, nýting þeirra í tveggja stiga skotum var 32%, en í þriggja stiga skotunum rötuðu aðeins 4 af 25 niður. Það gerir aðeins 16% nýtingu. Þetta var jafnframt lægsta stigaskor Grindvíkinga á tímabilinu til þessa.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hjá Grindavík var Ásdís Vala Freysdóttir með 11 stig og tók hún 11 fráköst, Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði  12 stig og Rachel Tecca skoraði 9 stig og tók 14 fráköst.

Hjá gestunum átti Kristen Denise draumaleik, hún skoraði 32 stig, tók 24 fráköst og stal 6 boltum.