Íþróttir

Elvar Már leikmaður ársins
Mánudagur 5. mars 2018 kl. 09:58

Elvar Már leikmaður ársins

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksoon og leikmaður Barry University var valinn besti leikmaður ársins í SSC deildinni í Division II NCAA í háskólaboltanum í Bandaríkjunum annað árið í röð.
Í úrslitakeppninni leiddi Elvar Barry í fyrsta sæti deildarinnar fyrir úrslitakeppnina með 18 sigra og 7 töp. Elvar er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar en meðaltal hans í leik er 20,1 stig og hann var einnig í lok tímabils með flestar stoðsendingar eða 7,3.
Hlutfall stoðsendinga gegn töpuðum boltum hjá Elvari er einnig hátt eða 2,1 og það er var það fjórði besti árangur ársins í deildinni.
Elvar var einnig með sæti í liði ársins annað árið í röð og var þjálfari hans, Butch Estes, þjálfari ársins.

Viðurkenningar Elvars með Barry University í SSC deildinni:
2017-2018:  Leikmaður ársins
2017-2018:  Í liði ársins
2016-2017:  Leikmaður ársins
2016-2017:  Í liði ársins
2015-2016:  Nýliði ársins
2015-2016:  Í liði nýliða ársins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024