Íþróttir

Elías Már að gera góða hluti hjá Gautaborg
Miðvikudagur 26. október 2016 kl. 11:42

Elías Már að gera góða hluti hjá Gautaborg

-Heillaði útsendara

Keflvíkingurinn Ellías Már Ómarsson skoraði sigurmark Gautaborgar í 1-0 sigri gegn AIK í vikunni en auk þess heillaði hann fjöldan allan af útsendurum sem staddir voru á leiknum til að fylgjast með efnilegum ungum Svía, Alexander Isak, hjá AIK. Má því segja að Elías hafi stolið senunni.

Elías Már er á láni hjá Gautaborg frá norksa liðinu Valerenga og sagði í samtali við fotbolti.net að Gautaborg sé í viðræðum við umboðsmann sinn, Ólaf Garðarsson, og segir málin munu skýrast á næstu vikum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024