Aðsent

Dásamleg döðlukaka með karamellukremi
Miðvikudagur 10. september 2014 kl. 11:00

Dásamleg döðlukaka með karamellukremi

Þeir sem þekkja mig vita hversu mikill sælkeri ég er en ég er mikið fyrir kökur og súkkulaði og finnst yndislegt að geta bakað og notað hollara hráefni sem fer betur með líkamann og blóðsykurinn. Það er nefnilega yfirleitt auðvelt að skipta út einhverju óhollu í uppskrift og setja í staðinn t.d. hollara mjöl eins og gróft heilhveiti, gróft spelt eða möndluhveiti. Svo er orðið mjög þægilegt að skipta út hvítum sykri yfir í xylitol, erythriol, pálmasykur, sukrin eða sugarless sugar en með allar þessar náttúrulegu sætur þá er hægt að skipta á sléttu bolli á móti bolla í uppskrift. Þó að smjör sé auðvitað hollt í hófi þá vilja sumir nota annað en þá er hægt að nota kókósolíu í staðinn. Þar sem það er stór helgi framundan í fallega bænum okkar og aldrei að vita nema gesti ber að þá langar mig að gefa ykkur uppskrift að döðluköku sem ég nota oft á mínu heimili og hún slær alltaf í gegn og er með betri kökum sem ég hef bakað. Hentar bæði sem eftirréttur eða í góðu kaffiboði.


Döðlukaka:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

235 g döðlur gróft saxaðar
120 g mjúkt smjör (eða 1 dl kókósolía)
3-5 msk kókóspálmasykur eða sugarless sugar (Now)
1 ¼ b heilhveiti eða spelt eða möndluhveiti
1 lúka saxaðar pekan- eða valhnetur (má sleppa)
1 1/3 msk vínsteinslyftiduft
½ tsk sjávarsalt
1 tsk vanilluduft
2 egg
Vatn

Karmellusósa:

120 g smjör (eða 1 dl kókósolía)
100 g kókóspálmasykur
½ tsk vanilla eða vanillustevía 10 dropar
¼ b rjómi (eða kókósmjólk)

Aðferð:

Setjið döðlur í pott og látið vatn fljóta rétt yfir. Látið suðuna koma upp og slökkvið þá á hitanum. Leyfið döðlumaukinu að standa í ca 3 mín í pottinum og bætið þá matarsódanum við og hrærið. Þeytið egg og sykur saman þar til ljóst og létt, bætið smjöri/olíu við, döðlumauki og rest af uppskrift saman við. Bakið við 180°C í 30-40 mín. Karmellusósa, allt sett í pott og soðið við vægan hita þar til sósan er hæfilega þykk. Hafa í skál til að skvetta ofan á köku ;) Borið fram með þeyttum rjóma ef vill. Njótið!

Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
www.pinterest.com/grasalaeknir
www.instagram.com/asdisgrasa