Viðskipti

Heilsuefling á skrifstofunni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 18. janúar 2020 kl. 07:28

Heilsuefling á skrifstofunni

– Sigurbjörg Gunnarsdóttir og Björgvin Jónsson stofnuðu fyrirtækið Hreyfisport og flytja inn heilsueflandi skrifstofulausnir

„Þetta er nýtt á Íslandi, kannski næsta bylting á eftir upphækkanlega skrifborðinu,“ segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir en hún og Björgvin Jónsson, byggingatæknifræðingur eiga og reka fyrirtækið Hreyfisport í Reykjanesbæ. Þau stofnuðu fyrirtækið fyrir nokkrum árum með innflutningi á útihreystitækjum en hófu nýlega innflutning á heilsueflandi skrifstofulausnum sem má segja að séu byltingakenndar.

Sigurbjörg er sálfræðimenntaður íþróttafræðingur en segir að það sem hafi ýtt þeim út í þetta hafi verið að þau voru farin að finna fyrir stoðkerfisóþægindum. „Við unnum áður bæði líkamlega vinnu, ég sem íþróttakennari og Björgvin sem smiður en við fórum bæði að vinna á skrifstofu og hreyfðum okkur því lítið yfir daginn. Við vorum bæði farin að finna fyrir mjóbaksóþægindum, vöðvabólgu á herðasvæði og jafnvel höfuðverk og það þótt við værum að lifa heilbrigðum lífsstíl og hreyfa okkur utan vinnutíma. Ég fór þess vegna að skoða hvað við gætum gert og gúggluðum hreinlega þessa lausn sem er alger snilld,“ segir Sigurbjörg.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Lifespan-skrifstofulausnirnar eru þær mest seldu í Bandaríkjunum í þessum vöruflokki en Sigurbjörg segir að þar séu þessi mál komin lengra en annars staðar. „Mörg af stærstu fyrirtækjum heims eins og Facebook, Google og Microsoft bjóða starfsmönnum sínum upp á bestu vinnuskilyrði sem völ er á hverju sinni og hafi notað Lifespan-tækin undanfarin ár, með góðum árangri. Sigurbjörg segir að með Lifespan-tækjunum geti starfsfólk hreyft sig á meðan það stundar vinnu með því að ganga á göngubretti, hjóla eða nota jafnvægisbretti. „Árangurinn kemur fram í lækkun blóðþrýstings og getur dregið úr stoðkerfisóþægindum. Þá bætir þetta auðvitað líkamlega og andlega heilsu og eykur þannig vellíðan og afköst starfsmanna.“

Að sögn Sigurbjargar þá sýni nýleg könnun Gallup að um helmingur Íslendinga starfi á skrifstofu. Því sé mikilvægt að passa upp á hreyfingu sem sé fólki mikilvæg en Lifespan-tækin koma þannig sterk inn í þennan þátt. Aðspurð segir Sigurbjörg að yfirleitt sé fólk fljótt að venjast tækjunum. „Við erum ekki að tala um að fólk eigi að hætta að mæta í ræktina en ég myndi auðvitað vilja sjá svona tæki á öllum skrifstofum. Þú getur sinnt nánast allri vinnu á sama tíma og þú gengur á bretti eða hjólar.“