Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Átta húsfélög á Ásbrú í Reykjanesbæ í þjónustu Eignaumsjónar
Föstudagur 27. desember 2019 kl. 08:09

Átta húsfélög á Ásbrú í Reykjanesbæ í þjónustu Eignaumsjónar

Umsvif Eignaumsjónar hafa aukist umtalsvert á Ásbrú í Reykjanesbæ með samningi við Ásbrú íbúðir ehf. um húsfélagaþjónustu.

Ásbrú íbúðir, sem er bæði leigu- og fasteingaþróunarfélag, hefur á undanförnum árum unnið að endurbótum á um 500 íbúðum sem félagið keypti á Ásbrú á sínum tíma. Þær hafa síðan verið leigðar út eða settar í almenna sölu eftir því sem framkvæmdum hefur miðað áfram. Til að uppfylla ákvæði laga um stofnun húsfélaga í fjöleignarhúsum samdi félagið við Húsastoð um að annast þau mál og yfirtók Eignaumsjón þann samning í vor, þegar félagið keypti allan rekstur Húsastoðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þrjú félög stofnuð á árinu – tvö á döfinni á næsta ári

Þrjú húsfélög hafa í framhaldinu verið stofnuð í sumar og haust á Ásbrú á vegum Eignaumsjónar. Áður var búið að stofna fimm húsfélög fyrir Ásbrú íbúðir og eru nú samtals átta húsfélög á svæðinu í þjónustu hjá Eignaumsjón. Þeim mun svo að óbreyttu fjölga í að minnsta kosti 10 á næsta ári en þá er fyrirhuguð stofnun tveggja nýrra húsfélaga á svæðinu fyrir Ásbrú íbúðir.