Mannlíf

Salfiskurinn fluttur í Grindavík
Sunnudagur 22. nóvember 2020 kl. 07:08

Salfiskurinn fluttur í Grindavík

Um þessar mundir er staðið í stórræðum í Kvikunni. Verið er að flytja stærsta hluta Saltfisksýningarinnar „Saltfiskur í sögu þjóðar“ á efri hæð hússins. Það er hönnuður sýningarinnar Björn G. Björnsson sem hefur haft yfirumsjón með flutningi og endurhönnun sýningarinnar. Verkið hefur gengið hratt og vel fyrir sig en það er fyrirtækið HH smíði sem sér um framkvæmd flutninga. 

Af þessum sökum verða sýningar hússins lokaðar að sinni en  enduropnun verður sérstaklega auglýst þegar af henni verður.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Frá og með laugardeginum 21. nóvember verður aftur opnað inn í forsalinn fyrir gesti og gangandi. Þar verður hægt verður að setjast niður með fjölskyldu eða vinum og föndra, taka myndir við jólamyndavegginn og narta í pipakökur. Hópar með færri en 10 fullorðnum eru velkomnir að líta við í kaffi og spjall frá kl. 10:00-17:00 frá næstu viku og fram að jólum; kynna sér framkvæmdirnar og njóta jólastemmingarinnar. 

Við bendum þó á að ef stærri hópar ætla að kíkja við er gott að hringja á undan sér og láta vita svo hægt sé að athuga með pláss út frá fjöldatakmörkunum. Símanúmer Kvikunnar er 420-1190, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar.