Pulsa með öllu ásamt súrum gúrkum og rauðkáli: „Now we are cooking“
Vilberg Skúlason, betur þekktur sem Villi pulsa, kvaddi nýverið Pulsuvagninn í Keflavík eftir rúmlega 46 ára farsælan feril og bauð bæjarbúum í risastórt pulsupartý, eins og greint hefur verið frá á miðlum Víkurfrétta. Í tilefni af þessum tímamótum rifjar Kjartan Már Kjartansson, fyrrum bæjarstjóri í Reykjanesbæ, upp bráðskemmtilegar minningar frá þeim tíma þegar hann og eiginkona hans tóku næturvaktir í vagninum.
Leiðir þeirra Villa lágu saman þegar vagninn stóð enn við Tjarnargötu, þar sem Bústoð er til húsa í dag. Kjartan og eiginkona hans, Jóna, voru nýútskrifuð með sitt fyrsta barn og nýbúin að kaupa íbúð. Til að láta enda ná saman skiptust þau á að taka næturvaktir um helgar eftir dansleiki.
Miðinn í glugganum og heitt kók í örbylgjuofninn
Kjartan segir að það hafi verið einstaklega gott að vinna fyrir Villa, þótt aðstæður hafi verið frábrugðnar því sem nú er. Í fyrsta vagninum var til að mynda ekkert salerni.
„Við settum bara miða í gluggann sem á stóð: ‚Skrapp heim að pissa, kem aftur eftir 10 mínútur‘ og fólk skildi það og virti,“ segir Kjartan í færslu sem hann skrifar á samfélagsmiðilinn Facebook. Þegar komið var til baka beið gjarnan hópur af fólki í miklu stuði.
Fastakúnnarnir voru margir og misjafnir og fljótlega lærðist starfsfólkinu á séróskirnar. Ein sú eftirminnilegasta var frá góðum vini Villa sem vildi láta setja kókglasið sitt í örbylgjuofninn, enda vildi hann drykkinn frekar heitan en kaldan.
Varnarliðsmaðurinn fékk „meira en allt“
Kjartan minnist þess sömuleiðis hve framandi bandarískum varnarliðsmönnum þótti íslenska pulsumenningin, sérstaklega þegar meðlæti eins og súrar gúrkur og rauðkál voru kynnt til sögunnar.
„Ég man eftir einum sem vildi fá eina með öllu. Fyrst setti ég það hefðbundna; tómat, sinnep og steiktan lauk, en þegar kom að hráum lauk og remúlaði kættist hann mjög. Þegar ég svo bauð honum að setja súrar gúrkur og rauðkál á pulsuna hló hann og sagði hátt og skýrt: ‚Now we are cooking!‘ og hoppaði kátur út í nóttina með eina með meira en öllu og kók.“
Vigtaður inn og út af vaktinni
Fleiri hafa deilt sögum af húmor Villa pulsu í athugasemdum við færslu Kjartans. Rannveig L. Garðarsdóttir rifjar upp þegar Villi réð ungan son hennar til starfa. Þegar hún spurði Villa síðar hvernig gengi stóð ekki á svörum hjá vertnum:
„Villi sagði að það gengi bara vel, en hann sagðist alltaf vigta strákinn inn og svo út aftur þegar vaktin væri búin, og ætlaði svo að sjá til hvort hann rukkaði hann um mismuninn,“ segir Rannveig og bætir við með broskalli að af því hafi þó aldrei orðið.
Gerist bóndi í nýjum kafla
Kjartan Már lýkur upprifjuninni á því að þakka Villa fyrir áralanga og fyrsta flokks þjónustu við bæjarbúa og óskar honum og eiginkonu hans, Gullu, alls hins besta. Fram undan eru ný og gjörólík verkefni hjá Villa en greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að hann hyggist nú söðla um og gerast bóndi. Nýjum eigendum Pulsuvagnsins er sömuleiðis óskað gæfu og gengis í rekstrinum.







