Karlakórinn
Karlakórinn

Mannlíf

Myndarlegt fjalla-gullregn eignast afkvæmi
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 16. júlí 2020 kl. 17:48

Myndarlegt fjalla-gullregn eignast afkvæmi

Sextíu ára gamalt fjalla-gullregn í garði við Greniteig 9 í Keflavík hefur að öllum líkindum eignast afkvæmi. Úti í horni á malbikuðu stæði við verslun Krambúðarinnar við Hringbraut í Keflavík hefur gullregn skotið rótum og blómstrar fallega þessa dagana. Telja verður líklegt að gullregnið við Krambúðina sé afkvæmi þess á Greniteignum og að það hafi sáð sér.

HÉR MÁ LESA UMFJÖLLUN VÍKURFRÉTTA Í ÞESSARI VIKU!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fjalla-gullregnið hefur nokkrum sinnum komist í fréttir Víkurfrétta. Fyrst var sagt frá því á forsíðu Víkurfrétta 9. júlí árið 1987.

„Það hefur löngum verið sagt að tré þrífist ekki hér í vindbælinu, Suðurnesjum. Þó er nokkuð víða gott skjól þar sem sjá má myndarlegan trjágróður í görðum. Í flestum tilfellum er hér um að ræða algengustu trjátegundirnar s.s. Brekkuvíði og Alaskavíði. Í bakgarði að Greniteigi 9 í Keflavík má þó finna mjög sjaldgæfa trjátegund, svokallað fjalla-gullregn. Er vitað um fjölmarga sem reynt hafa ræktun þess en ekki gengið.

„Gullregnið er erfitt til ræktunar hérna og það sem ég þakka hve vel „gullið“ mitt hefur dafnað er gott skjól.

Tréð er að nálgast þrítugsaldurinn og hefur aldrei verið fallegra,“ sagði Sigurður Einarsson, eigandi fjalla-gullregnsins, í Víkur-fréttum fyrir 33 árum síðan.

Hann sagði einnig að hann væri búinn að klippa mikið af því í gegnum árin og hefði fyrir nokkru síðan gróðursett annað í garðinum, sem nú nær rétt yfir meterinn. Gamla „gullið“ er hins vegar jafn hátt húsinu sem það stendur við, u.þ.b. átta, níu metrar. „Mér finnst einnig merkilegt hve tréð hefur dafnað, þar sem lítil mold var sett yfir melinn þegar garðurinn var frágenginn á sínum tíma. Það var ekki sett nema um fimm sentimetra moldarlag. En ég er líka með góðan áburð á blettinn – set reglulega kúaskít á hann”, sagði Sigurður Einarsson í forsíðufrétt Víkurfrétta árið 1987.

Gullregnið komst aftur í fréttirnar árið 1999. Þá var birt frétt um það 15. júlí og tréð að verða 40 ára gamalt. Aftur var rætt við Sigurð Einarsson, sem þá var nýorðinn 85 ára gamall, um tréð sem skartaði sínu fegursta og var í fullum blóma. Gullregn blómstrar aðeins ef sumarið árið áður var gott. Sumarið 1998 hefur því verið gott, því tréð var blómum prýtt í Víkurfréttum í júlí 1999.

Aftur var flutt frétt af fjalla-gullregninu árið 2011 og þá á forsíðu Víkurfrétta. Að þessu sinni fékk tréð viðurkenningu sem tré ársins á Íslandi það árið en útnefningin var á vegum Skógræktarfélags Íslands. Þetta var í fyrsta skipti sem tré á Suðurnesjum fékk þá útnefningu. Fjalla-gullregnið þótti fyrirtaks dæmi um það hvernig trjágróður getur vaxið og dafnað suður með sjó þrátt fyrir erfið skilyrði.

Nú fjöllum við aftur um gullregnið eða lítið afkvæmi þess, að haldið er, sem sprettur upp úr malbikinu við Krambúðina við Hringbraut í nokkurra tuga metra fjarlægð frá tré ársins 2011. Vonandi fær gullregnið við Krambúðina að vaxa og dafna áfram.