Leiðsögn sýningarstýra – Nína, okkar kærasta Nína.
Sýningarstýrur sýningarinnar Nína, okkar kærasta Nína, dr. Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir, munu leiða gesti um sýninguna næstkomandi sunnudag, 29. nóvember, kl. 14 í Listasafni Reykjanesbæjar.
Dr. Ynda Eldborg (f. 1956) er sjálfstætt starfandi fræðikona og sýningarstýrir á sviði myndlistar. Hún/hán hefur stundað kennslu í listfræði og listasögu við Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Myndlistaskólann í Reykjavík og haldið opinbera fyrirlestra. Undanfarin ár hefur Ynda einbeitt sér að rannsóknum á myndlist hinsegin listafólks og hinsegin listasögu Íslands.
Viktoría Guðnadóttir er íslensk myndlistarkona og sýningarstjóri, búsett í Hollandi. Hún stundaði myndlistarnám við AKI-akademíuna (ArtEZ) í Hollandi og framhaldsnám við Dutch Art Institute. Hún hefur einnig sótt námskeið í hinsegin myndlist og sýningarstjórnun við Node Center í Berlín. Í listsköpun sinni fjallar Viktoría meðal annars um sjálfsmynd og hinsegin frásagnir.





