Mannlíf

  • Kemur frá Kanada á tónleika Nýdanskrar í Hljómahöll
    Hljómsveitin Nýdönsk.
  • Kemur frá Kanada á tónleika Nýdanskrar í Hljómahöll
    Michael Gnat. Mynd af Facebook síðu hans.
Fimmtudagur 15. janúar 2015 kl. 08:57

Kemur frá Kanada á tónleika Nýdanskrar í Hljómahöll

„Hljómsveitin Nýdönsk spilaði á Menningarnótt á tónleikum Rásar 2 í Reykjavík. Þar var Kanadamaður á tónleikunum, Michael Gnat, sem varð ástfanginn af hljómsveitinni. Svo ástfanginn að hann er búinn að kaupa sér flug til Íslands og miða á tónleikana í Hljómahöll,“ segir Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar. Tómas segir þetta mjög skemmtilegt svona í ljósi þess að hljómsveitin telst til íslenskra dægurlagahljómsveita og ólíklegt að margir útlendingar heillist af hljómsveitinni. Tónleikar Nýdanskrar verða í Hljómahöll 5. mars næstkomandi. 

 
Tómas Young. 
 
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024