Mannlíf

Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar valin
Dynhóll 6 er jólahús Suðurnesjabæjar 2020.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 1. janúar 2021 kl. 07:25

Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar valin

Jóla- og ljósahús Suðurnesjabæjar árið 2020 hafa verið valin og eigendum þeirra afhentar viðurkenningar frá ferða-, safna- og menningarráði sveitarfélagsins. Tilkynnt var um val á húsunum í útsendingu fésbókarsíðu Víkurfrétta í sérstökum jólaþætti úr Suðurnesjabæ sem unnin var í samstarfi Suðurnesjabæjar og Víkurfrétta.

Hlíðargata 43 er ljósahús Suðurnesjabæjar 2020 og Dynhóll 6 er jólahús Suðurnesjabæjar 2020. Eigendur þeirra húsa fengu m.a. gjafabréf frá HS Veitum og konfekt og blóm frá bæjaryfirvöldum. Þá fengu Gauksstaðavegur 2 og Holtsgata 34  sérstaka viðurkenningu fyrir skemmtilegar skreytingar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ferða-, safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar lýsir ánægju sinni með framlag íbúa við að lýsa upp skammdegið og ljóst er að mikill metnaður liggur að baki skreytingum í sveitarfélaginu.
Ráðið þakkar öllum þeim sem komu með ábendingar við valið.

Eigendur Dynhóls 6 með viðurkenninguna.

Hlíðargata 43 er ljósahús Suðurnesjabæjar 2020.

Eigendur Hlíðargötu 43 með viðurkenninguna.

Holtsgata 34 fékk sérstaka viðurkenningu fyrir skemmtilegar skreytingar.

Eigendi Holtsgötu 34 með viðurkenninguna.

Gaukstaðavegur 2 fékk sérstaka viðurkenningu fyrir skemmtilegar skreytingar og eigendurnir á myndinni fyrir neðan.