Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Guðjón Smári leikari: „Ég kann að hlýða“
Laugardagur 21. mars 2026 kl. 10:43

Guðjón Smári leikari: „Ég kann að hlýða“

Það er ekki á hverjum degi sem fólk er ráðið í aðalhlutverk í stórsöngleik í gegnum netskilaboð en það var raunin hjá Guðjóni Smára Smárasyni. Hann fer með hlutverk Galíleós Fígarós í We Will Rock You, þrátt fyrir að hafa aldrei stigið á svið áður.

„Kristín leikstjóri sendi á mig skilaboð: „Blessaður, ég sá vídeó af þér, þú ert Galíleó Fígaró’,“ segir Guðjón Smári léttur í bragði aðspurður um hvernig þetta kom til. „Ég sagði bara ókei, af því ég kann að hlýða.“

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Uppreisn gegn „stafrænu froðupoppi“

Persónan Galíleó er miðpunktur sögunnar en hann passar illa inn í þann framtíðarheim sem verkið lýsir. Guðjón lýsir honum sem venjulegri manneskju sem er ekki hrifin af þeirri átt sem heimurinn hefur tekið. „Hann er uppreisnarseggur sem á erfitt með þetta stafræna froðupopp sem ríkir. Hann er pínu „pick-me“ týpa en á mjög skemmtilegan hátt,“ útskýrir Guðjón.

Listrænt og djúpt ferli

Þar sem þetta er frumraun Guðjóns á leiksviðinu vissi hann lítið hverju hann átti von á þegar æfingar hófust. Hann segir ferlið hafa verið lærdómsríkt og mun dýpra en hann grunaði í upphafi.

„Við höfum grafið ofboðslega djúpt í karakterana, hlutverk þeirra í heiminum og hvert sagan er að fara. Þetta er búið að vera mjög listrænt ferli og lærdómsríkt,“ segir hann. Þótt æfingarnar séu krefjandi og taki mikinn tíma segir hann gleðina skipta mestu máli.

Fyrir alla sem unna góðri tónlist

Guðjón er sannfærður um að sýningin eigi erindi við breiðan hóp, ekki síst vegna tónlistarinnar. „Þetta er fyrir alla sem hafa gaman af skemmtilegri tónlist og flottu leikhúsi. Queen-lögin stækka þetta náttúrulega heldur betur og gera verkið stórt og mikið.“