Mannlíf

Guð og lukkan með Davíð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 7. maí 2022 kl. 06:08

Guð og lukkan með Davíð

Keflvíski leikarinn Davíð Guðbrandsson hefur leikið í vinsælum sjónvarpsseríum að undanförnu á milli þess sem hann notar röddina í sögum á Storytel

„Mér hefur brugðið fyrir á skjánum hér og þar undanfarið og það skrifast að ég held mest á guð og lukkuna, ljúfa strauma kosmósins, að ég hafi rambað á það að vera réttur maður á réttum stað. Svona er þetta oft, starf leikarans, maður rembist eins og rjúpa við staur án árangurs og svo þegar maður á síst von á því flæðir allt af stað,“ segir Keflvíkingurinn Davíð Guðbrandsson, leikari, en hann hefur verið nokkuð reglulega á sjónvarpsskjánum í vetur. Hann var t.d. meðal leikara í seríunni Ófærð og Verbúðinni en báðar nutu þær mikilla vinsælda.

,,Ekki glefsa, bíta!” Davíð í hlutverki Jónasar Kr. í Verbúð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ritstjórinn

Hvernig var að vinna að þessum verkefnum. Þú tókst þig vel út sem ritstjóri dagblaðs í Verbúðinni. 

„Ég var svo heppinn að landa hlutverki Jónasar Kristjánssonar heitins, fyrrverandi frétta- og ritstjóra og eins áhrifamesta manns í sögu íslenskrar blaðamennsku. 

Í bókinni Frjáls og óháður fer Jónas yfir feril sinn og segir úgefandi hans í kynningu bókarinnar: „Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, er þekktur fyrir að láta skoðanir sínar í ljós og hrista upp í fólki. Hefur þrívegis verið rekinn úr starfi fyrir að segja sannleikann.“

Þótt hlutverk mitt væri lítið vildi ég gera því skil af virðingu og heilindum, án þess að skopskæla hans persónu eða fara í nokkursskonar eftirhermuleik. Ég undirbjó mig vel, las mikið og hlustaði og horfði á viðtöl við hann. Hann var með sérstakan talanda og ég leyfði mér að láta örla á honum í túlkun minni en þó ekki um of. Ég safnaði saman þeim myndum sem ég fann af honum frá þessum árum og það var svo einn okkar allra fremsti gervahönnuður, Suðurnesjakonan Kristín Júlla Kristjáns, sem rak smiðshöggið á útlit minnar persónu og á hún mikið lof skilið fyrir það afrek sem hún vann í þessi seríu sem gerist á afar litríkum tímum í okkar menningarsögu. Verbúðin virðist hafa snert sameiginlega þjóðartaug okkar Íslendinga og ég enn eftir að hitta þá manneskju sem ekki ber þáttaröðinni vel söguna.“

Sorgleg en sæt

Hvað geturðu sagt okkur um nýjasta verkefnið, BERDREYMI? 

„Berdreymi er önnur kvikmynd leikstjórans Guðmundar Arnars Guðmundssonar, leikstjóra Hjartasteins, og er hann einnig handritshöfundur. Eftir að hafa fengið símtal þar sem hann bauð mér hlutverk föður Adda, einnar aðalpersónu myndarinnar, fékk ég handritið sent til aflestrar. Ég settist niður, hóf lestur og gat ekki lagt það frá mér. Ég get án efa sagt að kvikmyndahandritið er það allra besta sem ég hef lesið hingað til.

Sagan gerist á óræðum tíma rétt fyrir aldamót og fjallar um ungan vinahóp sem reynir að gera sitt besta í þeim aðstæðum sem þeir fæðast inn í, aðstæður sem við könnumst öll við úr okkar nærumhverfi, og oft á tíðum er það fullorðna fólkið sem er óhæft til þess að koma ungu krökkunum til aðstoðar og rétta þeim hjálparhönd, heldur gerir illt verra.

Guðmundur Arnar er einstakur leikstjóri, hann er hæglátur og vandvirkur, umhyggjusamur, kurteis, aðlaðandi í háttum og framkomu og metnaður hans bráðsmitandi. Öll undirbúningsvinna og framkvæmd tökuferlisins var til fyrirmyndar, frábært listafólk sem að henni kemur útkoman og umfjöllun eftir því. Það er sannur heiður að fá að tilheyra þannig hópi. Sagan er erfið en sönn, grimm en falleg, sorgleg en sæt, ljót en ljúf. Þetta er sannarlega kvikmynd sem lætur engan ósnotinn.“

Ævintýri í heimsfaraldri

Hvernig hefur líf leikarans Davíðs Guðbrandssonar verið í heimsfaraldri? 

„Upptökur á þriðju þáttarröð Ófærðar áttu sér stað í miðjum faraldri en með lagni og ótrúlegum sveigjanleika og skipulagi gekk það allt saman upp, við vorum hitamæld á hverjum morgni og sett í okkar hólf og allra smitvarna vel gætt, fórum reglulega í próf og ef upp kom smit var strax brugðist við því. Þess á milli komu tilslakanir og svo aftur hertar aðgerðir og ekki auðvelt verk að vera framleiðandi við slíkar aðstæður. Það segir sig sjálft að hringla með tökuplan fram og til baka vegna óviðráðanlegra aðstæðna er meira en að segja það, að flytja heilt stóð af mótorhjólum milli landshluta, að fljúga leikurum og starfsfólki hingað og þangað og koma þeim öllum fyrir á hótelum, að panta mat fyrir 90 manns, að afpanta mat fyrir 90 manns, að panta gistingu og afpanta svo daginn eftir vegna sóttkvíar og einangrunar. En á einhvern ótrúlegan hátt gekk þetta allt upp að lokum og úr varð mikið ævintýri. Ófærð er fyrir löngu orðin fastur punktur í íslenskri þáttagerð og ekki að ástæðulausu og von á seríunni á Netflix innan skamms.

Annars fann ég satt best að segja minna fyrir þessu en margir. Ég starfa einnig mikið við talsetningu og lestur hljóðbóka og það er einfaldara og auðveldara í sniðum. Hjá Storytel er ég einn og innilokaður í litlu hljóðveri og þarf ekki að hitta sálu frekar en ég vil, er nettengdur við tæknimann sem situr með heyrartólin sín í stúdíoíbúð í Berlín eða í bílskúr raðhúss í Kópavogi. 

Sviðslistafólk landsins fann þó vel fyrir þessum lokunum og fjöldatakmörkunum, meira en margar aðrar stéttir því eins og við vitum var öllu skellt í lás í langan tíma með tilheyrandi röskunum og tekjutapi.“

Rannsóknarlöggan í Danaveldi

Hvernig er svo staðan hjá þér á næstunni, hvað er framundan?

„Nú hef ég nýhafið lestur á bókum danska metsöluhöfundarins Jussi Adler-Olsen um Deild Q fyrir Storytel og Forlagið. Þetta eru átta bækur talsins, hver annarri betri.

Með hækkandi sól mun ég því loka mig af í myrkvuðum upptökuklefa og sökkva mér dýpra og dýpra ofan í harðan heim rannsóknarlögreglunnar í Kaupmannahöfn,“ sagði Davíð.

Guðbjörg Huldís, gervahönnuður, græjar Davíð í Ófærð.

Tökur á Ófærð í Sandvík og á Siglufirði.

Nokkrum augnablikum áður Davíð skutlaði sér í sjóinn við höfnina i Hafnarfirði í Ófærð.