Mannlíf

Fagradalsfjall  (you're so pretty)
Fimmtudagur 15. apríl 2021 kl. 15:30

Fagradalsfjall (you're so pretty)

Elíza Newman með nýtt lag

Fagradalsfjall (you're so pretty) er nýtt lag með Elízu Newman sem kemur út 15. apríl. Elíza samdi lagið eftir að hafa fengið margar fyrirspurnir og áskoranir allstaðar að úr heiminum um að semja annað eldfjallalag fyrir nýja gosið á Reykjanesi. Lagið er samið til að létta lund og koma með smá gleði inni í þetta annars hressandi vor. Semsagt sjálfstætt framhald af „Eyjafjalljökull“ og samið á tíu mínútum eins og það,“ segir Elíza.

Upptöku stjórnaði Gísli Kjaran Kristjánsson og syngur Elíza og spilar á hljómborð, ukulele, rafmagnsgítar og bassa. Gísli trommar, spilar á gítar og klukkuspil. Myndband með einstökum myndum af gosinu verður einnig frumsýnt 15. apríl með myndum af gosstöðvum frá Jóni Hilmarssyni og Rúnari Inga Garðarssyni, klippt saman af Karli Newman.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Elíza vinnur nú að fimmtu sólóbreiðskífu sinni sem kemur út seinna á þessu ári.

Tónlistarkonan Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið með hljómsveit sinni Kolrössu Krókríðandi er þær sigruðu Músiktilraunir með látum hér um árið. Hún hefur starfað við tónlist alla tíð síðan og er fjölhæfur listamaður bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Elíza hefur farið víða í tónlistarsköpun sinni, og samið allt frá pönki til óperu til Eurovision-laga með smá stoppi á Eyjafjallajökli. Hún starfaði erlendis lengi og hefur gefið út fimm plötur með Kolrössu/Bellatrix, eina með hljómsveitinni Skandinavia og fjórar sóló plötur til þessa sem allar hafa hlotið lof gagnrýnenda bæði heima og erlendis og hlaut síðasta breiðskífa Elízu, Straumshvörf m.a tvær tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins og lag ársins.