„Lækkið væntingarnar til íslenska sumarsins“
Skúli Sig heldur ró sinni þegar spáð er tuttugu stiga hita og flettir upp öllum veðurstöðvum norðan Afríku til að athuga hvort það geti örugglega staðist. Hann á epískar minningar úr Ásbyrgi, grillar humar frá Kobba og heldur fast í þá skemmtilegu sumarhefð að halda upp á afmælið sitt á hverju ári. Þegar rignir mælir hann með því að fólk setji sig í sérstakar stellingar.
Þjóðhátíð, humar frá Kobba og falinn staður í Ljónagryfjunni
Þegar Skúli er beðinn um að velja sína uppáhalds sumarminningu á hann erfitt með að nefna aðeins eina, en tvær ferðir standa þó upp úr í fljótu bragði.
„Það er Þjóðhátíð í Eyjum með alla fjölskylduna árið 2024. Og svo er það eftirminnileg útilega í Ásbyrgi hér um árið í góðra vina hópi. Það var epísk ferð, svo ekki sé meira sagt,“ segir Skúli. Ásbyrgi er einmitt staðurinn sem hann myndi velja ef hann fengi einn dásamlegan frídag í sumar, enda telur hann það einn allra huggulegasta stað landsins.
Þegar það kemur að því að kveikja á grillinu í alvöru sumarveðri mætir hann vel undirbúinn:
„Íslenska lambið fer alltaf á grillið og svo er humar frá honum Kobba í Humarsölunni alltaf ljúfur,“ segir Skúli og bætir við glettinn: „#ekkisamstarf.“ Meðlætið með grillsteikinni er einfalt og gott: „Hefðbundin grillbakarí kartafla, mögulega með bræddum osti eða bræddu hvítlaukssmjöri.“
Þegar Skúli er spurður út í faldan gimstein á Íslandi sem of fáir vita af, svarar hann því til að hann sé svo vel falinn að hann hafi hreinlega ekki fundið hann sjálfur ennþá. „En ég hef heyrt af þó nokkrum. Reyndar er ákveðinn hluti af Ljónagryfjunni falinn gimsteinn sem fáir vita af,“ segir hann leyndardómsfullur.
Engin hlaðvörp og leyndarmál sem þola ekki prentun
Skúli lætur alla tækni eiga sig þegar hann fer í frí og ætlar ekki að eyða tímanum í bækur eða snjallsíma í sumar. „Íslenska náttúran, fjölskyldan og góðir vinir eru mitt hlaðvarp,“ segir hann ákveðinn.
Hann viðurkennir að hann eigi engar slæmar minningar úr ferðalögum, en það sé þó ekki þar með sagt að allt hafi verið siðsamlegt. „Það eru vissulega til mjög fyndnar sögur úr ákveðinni útilegu, en þær þola því miður hvorki dagsins ljós né opinbera prentun!“
SUMARRÁÐ SKÚLA
Bíltúralagið í ár: „Sólarsamba“ með GÓSS-inu.
Ómissandi sumarhefð: „Ég held mjög svo fast í þá hefð að halda upp á afmælið mitt á sumrin. Búinn að gera það frá fæðingu. Mjög skemmtilegt allt saman, blöðrur og læti!“
Fyrsta verk í 20 stiga hita: „Ég held ró minni og skoða allar veðurstöðvar. Ef þetta er að ganga eftir þá nýt ég þess í rólegheitum með góðum drykk og félagsskap.“
Besta ráðið fyrir rigningardaga: „Lækkið einfaldlega væntingarnar til íslenska sumarsins. Þannig verða hverjar fimm mínútur án rigningar eins og lúxusfrí. Nú, ef rignir og er kalt, þá á maður bara að njóta þess að sitja í fullum vetrarklæðum með ís í brauði og ímynda sér að maður sé staddur í dramatískum íslenskum farsa í leikstjórn Baltasars Kormáks. Annars er það nú þannig að mér finnst rigningin bara góð...“






