Suðurnesjaþrennan fór á kostum í sigri á Bosniú - Elvar með 30 stig
Suðurnesjamennirnir Elvar Már Friðriksson, Jón Axel Guðmundsson og Kristinn Pálsson fóru fyrir íslenska landsliðinu í körfuknattleik þegar það vann magnaðan sigur á Bosníu 113–101, í undankeppni heimsmeistaramótsins í Laugardalshöll í kvöld.
Suðurnesjaþrennan skoraði samtals 68 af 113 stigum íslenska liðsins, eða rúmlega 60% stiga Íslands. Elvar Már var stigahæstur með 30 stig og gaf auk þess tíu stoðsendingar. Kristinn Pálsson var með 20 stig og Jón Axel Guðumundsson skoraði 18 stig. Stiganýting íslenska liðsins var 70% í þriggja stiga skotum og heilt yfir frábær. Sérfræðingar RÚV á leiknum töluðu um besta sóknarleik sem þeir hafi séð Ísland spila og Elvar Már tók undir það í viðtali.
Íslenska liðið byrjaði af krafti og var níu stigum yfir eftir fyrsta leikhluta, 32–23. Bosníumenn minnkuðu muninn í þrjú stig fyrir hálfleik, 60–57.
Ísland náði aftur góðum tökum á leiknum í þriðja leikhluta og var með tólf stiga forystu fyrir lokaleikhlutann, 84–72. Íslendingar héldu þeirri forystu til leiksloka og fögnuðu 113–101 sigri.
Sigurinn var afar mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttunni um sæti á HM sem fram fer í Katar á næsta ári. Ísland hefur nú unnið fjóra af níu leikjum sínum í undankeppninni. Þeir halda nú til Tyrklands og leika við heimamenn sem eru topplið riðilsins á útiveli.




