Farsælt afmælisár hjá GSG – 18 ára ungliði skráði sig 142 sinnum í golf
Golfklúbbur Sandgerðis átti farsælt 40 ára afmælisár. Rekstrartekjur klúbbsins námu tæplega 103 milljónum króna og hagnaður ársins var tæpar 22 milljónir. Félagsmönnum fjölgaði verulega og eru þeir nú 420 talsins. Þá fjölgaði skráðum golfhringjum á Kirkjubólsvelli um rúm 25% milli ára.
Þetta kom fram á aðalfundi Golfklúbbs Sandgerðis sem haldinn var í klúbbhúsinu við Kirkjubólsvöll fimmtudaginn 19. nóvember.
Mikil aukning hefur orðið í rekstri klúbbsins en á síðasta ári námu rekstrartekjur fyrir fjármagnsliði 65,7 milljónum króna. Tekjuaukningin nemur því um 37 milljónum króna, eða rúmlega 56%.




