Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Íþróttir

Daníel Leó skoraði sitt fyrsta mark fyrir dönsku meistarana í Sambandsdeildinni
Daníel Leo í landsleik fyrr í mánuðinum á Laugardalsvelli. Mynd/akureyri.net-Skapti Hallgrímsson.
Föstudagur 27. nóvember 2026 kl. 17:24

Daníel Leó skoraði sitt fyrsta mark fyrir dönsku meistarana í Sambandsdeildinni

Daníel Leo Grétarsson, atvinnumaður hjá danska meistaraliðinu AGF skoraði annað mark liðsins eftir hornspyrnu í 1-4 sigri á Brann í Noregi í Sambandsdeildinni í gær.

Þetta var fyrsti sigur AGF í Sambandsdeildinni á þessu keppnistímabili. Leikurinn fór fram fyrir framan 12.393 áhorfendur, þar af hátt í þúsund stuðningsmenn AGF.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Grindvíkingurinn og landsliðsmaðurinn skoraði sitt fyrsta mark í Evrópuleik og einnig sitt fyrsta mark fyrir AGF þegar danska liðið vann sinn fyrsta leik í Sambandsdeildinni.

Daníel Leó skoraði annað mark AGF á 39. mínútu og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá danska liðinu. Hann sagði nýlega við Víkurfréttir að það væri gaman að fá tækifæri á að spila í Evrópuleikjum en danska liðið er danskur meistari frá síðasta ári.

Danskir miðlar hrósuðu Íslendingnum en markið var glæsilegt og liðið hafði sérstaklega æft föst leikatriði eins og aukaspyrnur og hornspyrnur. Daníel Leo stökk hæst allra þegar boltinn kom fyrir markið og skallaði hann glæsilega í markið.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100