Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Fréttir

Vonbrigði bæjarráðs með ákvörðun Kadeco - viðræður í gangi um lausn
Mánudagur 22. september 2025 kl. 10:16

Vonbrigði bæjarráðs með ákvörðun Kadeco - viðræður í gangi um lausn

Byggingaréttargjöld hindra uppbyggingu íbúða fyrir fatlað fólk á Ásbrú

Bæjarráð Reykjanesbæjar lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Kadeco um að fella ekki niður byggingaréttargjöld vegna uppbyggingar Brynju leigufélags á Grænásbraut 2 á Ásbrú. Þar stóð til að reisa sjö íbúða raðhús sem ætlað er til úthlutunar til íbúa með fatlanir.

Málið var til umræðu á fundi bæjarráðs þann 4. september þar sem Gunnar Kr. Ottósson skipulagsfulltrúi og Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mættu á fundinn.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Bæjarráð telur að samfélagslega mikilvæg uppbygging, sem stuðlar að bættri búsetu og lífsgæðum fatlaðs fólks, eigi að njóta skilnings og stuðnings. Ráðið hefur því falið Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna málið áfram og leita lausna.

Uppfært 23. sept.:

Pálmi Freyr Randversson, framkvæmdastjóri Kadeco, segir félagið ekki hafa getað samþykkt óskir bæjarins um að fella niður gjaldið vegna þess að þá yrði meðgjöf ríkisins meiri en þau 18% sem lög gera ráð fyrir og væri einnig fordæmisgefandi gagnvart öðrum verkefnum. Þó vilji ríkið og Kadeco ræða að gefa veglegan afslátt, allt að 50%.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri segir mikilvægt að ná lausn í málinu. Það sé brýn og mikil þörf á húsnæði fyrir fatlaða í Reykjanesbæ og bærinn hafi mikinn áhuga á að leysa það.