Vogar ætla í sókn í atvinnuuppbyggingu á Keilisnesi
Framtíðaratvinnuuppbygging á Keilisnesi er eitt helsta áherslumál í starfsemi Sveitarfélagsins Voga á árinu en svæðið býr yfir ótvíræðum kostum til ýmiss konar uppbyggingar. Framtíðaruppbygging mun fjölga atvinnutækifærum í sveitarfélaginu auk þess að styrkja rekstur þess og þar með auka lífsgæði íbúa. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins, sem hefur sett í loftið nýja heimasíðu, keilisnes.is.
„Við stöndum nú á þeim tímamótum að nýtt aðalskipulag er á lokametrum og því ekkert að vanbúnaði að hefja deiliskipulagsgerð. Vilji sveitarfélagsins er til að fá öfluga aðila að borðinu sem sjá fyrir sér að byggja upp atvinnustarfsemi til framtíðar á svæðinu,“ segir í frétt á vef Sveitarfélagsins Voga.
Nýlega var settur í loftið vefurinn www.keilisnes.is til að kynna svæðið og verður vefurinn uppfærður eftir því sem verkefninu vindur fram.
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér vefinn. Þá verður efnt til íbúafundar á næstunni til að kynna verkefnið.








