Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025

Fréttir

Vilja tafarlausar úrbætur í vetrarþjónustu á gervigrasvelli
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
mánudaginn 10. nóvember 2025 kl. 06:55

Vilja tafarlausar úrbætur í vetrarþjónustu á gervigrasvelli

Gervigrasvöllurinn í Reykjanesbæ hefur ekki fengið vetrarþjónustu frá því í september 2024, þegar verktaki sem sá um snjóhreinsun sagði upp samningi sínum við bæinn. Þetta kom fram í máli Alexanders Ragnarssonar (D) á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar nýlega. 

Í bókun sem Alexander lagði fram fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins kemur fram að í kjölfar þess hafi iðkendur, foreldrar og stjórnendur tekið að sér snjóhreinsun sjálf með tækjum sem geti, að mati sérfræðinga, verið skaðleg fyrir gervigrasið.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Flokkurinn leggur áherslu á að Reykjanesbær bregðist strax við og kanni hvort hægt sé að semja við verktaka án tafar eða fjárfesta í eigin búnaði til snjómoksturs.

„Ekki er hægt að bíða eftir fjárhagsáætlun og nýju ári til umbóta,“ segir í bókuninni. „Ekki er hægt að treysta á að það verði óafturkræf skemmd á grasinu með notkun á ófullnægjandi búnaði við snjóhreinsun.“

Undir bókunina skrifuðu Alexander Ragnarsson, Margrét Sanders og Guðbergur Reynisson fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025