HSS
HSS

Fréttir

Líkur á skúrum síðdegis
Sólarlagið í gærkvöldi séð frá Vatnsnesi í Keflavík. VF/Hilmar Bragi
Þriðjudagur 10. júní 2025 kl. 07:33

Líkur á skúrum síðdegis

Veðurhorfur á landinu: Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s í dag. Bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis, einkum inn til landsins. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Vesturlandi. Hægt vaxandi austanátt á morgun, 5-15 m/s seinnipartinn, hvassast syðst. Fer að rigna, fyrst um landið sunnanvert, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast norðantil. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Faxaflói

Norðvestlæg átt 3-8 og bjartviðri. Hiti 4 til 8 stig. Hæg austlæg eða breytileg átt á morgun og áfram bjart, en stöku skúrir seinnipartinn. Hiti 10 til 15 stig.
Spá gerð: 09.06.2025 21:06. Gildir til: 11.06.2025 00:00.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Austlæg átt 3-8 m/s, bjart með köflum, en líkur á stöku skúrum seinnipartinn. Hiti 9 til 14 stig. Austan 8-13 og fer að rigna fyrir hádegi. Hiti 7 til 11 stig.
Spá gerð: 10.06.2025 04:01. Gildir til: 11.06.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Gengur í austan 5-10 m/s, en 10-15 við suðurströndina. Víða þurrt og bjart veður, en fer að rigna sunnanlands seinnipartinn og einnig á Austfjörðum um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi.

Á fimmtudag:
Norðvestlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað að mestu og dálítil væta með köflum, en yfirleitt þurrt um kvöldið. Hiti 7 til 17 stig, svalast norðvestantil.

Á föstudag:
Norðaustan 3-8 og bjartviðri, en skýjað á austurhelmingi landsins og þurrt að kalla. Hiti frá 7 stigum við austurströndina, upp í 18 stig á Suðvesturlandi.

Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir austan- og norðaustanátt. Skýjað að mestu og væta með köflum í flestum landshlutum. Hiti 8 til 16 stig.
Spá gerð: 09.06.2025 20:00. Gildir til: 16.06.2025 12:00.