Dubliner
Dubliner

Fréttir

Tíu milljarða framkvæmdir í Helguvík í samstarfi við Atlantshafsbandalagið 
Frá undirritun samninga um Helguvík, f.v.: Halldór K. Hermansson, hafnarstjóri, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og Jón Björgvin Guðnason, framkvæmdastjóri Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli. VF/pket.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 27. nóvember 2025 kl. 10:43

Tíu milljarða framkvæmdir í Helguvík í samstarfi við Atlantshafsbandalagið 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu mannvirkja í Helguvík sem munu kosta allt að tíu milljörðum króna og mun skapa um eitthundrað störf.

Um er að ræða stækkun á olíubirgðastöð Atlantshafsbandalagsins í Helguvík, sem felur í sér byggingu nýs 390 metra viðlegukants og birgðageymslu fyrir 25 þúsund rúmmetra af skipaeldsneyti. Um er að ræða sameiginlegt verkefni íslenskra stjórnvalda og Atlantshafsbandalagsins sem fjármagnar framkvæmdirnar, en áætlað er að fjárfesting bandalagsins geti numið allt að tíu milljörðum króna.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Það er mikilvægt að styrkja varnarinnviði og getu hér á Íslandi til að geta tryggt betur stuðning við skip bandalagsríkja sem sinna eftirlit og aðgerðum á Norður-Atlantshafi. Þá nýtist þessi aðstaða einnig fyrir okkur og stuðlar jafnframt að auknu öryggi hvað varðar eldsneytisbirgðir og hafnaraðstöðu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.  

Nú stendur yfir undirbúningsvinna og hönnun umræddra mannvirkja í Helguvík sem jafnframt geta nýst í borgaralegum tilgangi. Stefnt er að því framkvæmdir hefjist síðla árs 2026 og þeim ljúki árið 2029.  

„Reykjanesbær og Reykjaneshöfn fagna fyrirhugaðri uppbyggingu mannvirkja á vegum Atlantshafsbandalagsins í Helguvík, sem ætlað er að auka öryggi á Norður-Atlantshafi. Þessar framkvæmdir munu hafa mjög jákvæð áhrif fyrir atvinnulífið á svæðinu,“ segir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Dubliner
Dubliner