Styrktarátak Nettó skilar 5,5 milljónum króna til Ljóssins
Alls söfnuðust 5,5 milljónir króna í styrktarátaki Nettó og renna óskiptar til Ljóssins. Framlagið fer í söfnunarsjóð fyrir nýtt og stærra húsnæði fyrir endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðina.
Nettó hefur lokið styrktarátaki til stuðnings Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Samtals söfnuðust 5,5 milljónir króna sem renna óskiptar til Ljóssins og styðja við fjáröflun fyrir nýtt og stærra húsnæði fyrir starfsemina.
Í átakinu voru seldir taupokar og slæður, prýdd verkum myndlistarmannsins Steingríms Gauta Ingólfssonar. Vörurnar voru til sölu í verslunum Nettó um land allt og jafnframt í móttöku Ljóssins.
„Það er okkur sönn ánægja að leggja okkar af mörkum til Ljóssins. Starfið sem þar fer fram snertir samfélagið allt og við erum afar þakklát fyrir frábæra þátttöku viðskiptavina Nettó um land allt sem sýndu stuðning sinn í verki með því að kaupa fallegu vörurnar með verki Steingríms Gauta í Nettó,“ segir Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, markaðsstjóri Nettó.
Eva Guðrún Kristjánsdóttir, verkefnastjóri markaðsmála hjá Ljósinu, segir verkefnið hafa verið afar gefandi: „Að koma þessu fallega kynningarverkefni frá hugmynd að tilbúinni vöru hefur verið ótrúlega gefandi ferli. Allir sem komu að verkefninu stóðu sig frábærlega og það hefur verið virkilega gaman að vinna þetta með öflugu fólki innan Nettó og Ljóssins. Það er ómetanlegt að fá svona stuðning í starfsemi Ljóssins.“
Steingrímur Gauti segir tenginguna við Ljósið persónulega: „Afi minn fór í endurhæfingu hjá Ljósinu og leið þar virkilega vel. Ljósið er því alveg sérstakur staður fyrir mér og því finnst mér sjálfsagt að taka þátt í þessu styrktarverkefni. Orkan í húsinu hefur alltaf verið jákvæð og falleg – næstum því áþreifanleg, og ég er því stoltur að fá að leggja verkefninu lið og óska öllum sem tengjast Ljósinu alls hins besta.“
Ljósið veitir sérhæfða endurhæfingu og stuðning fyrir fólk sem fengið hefur krabbamein og aðstandendur þess, með það að markmiði að efla líkamlegt og andlegt þrek, setja markmið og bæta lífsgæði.





