Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Staðarborg í Vogum fékk styrk úr Framkvæmdasjóði
Fimmtudagur 29. maí 2025 kl. 06:10

Staðarborg í Vogum fékk styrk úr Framkvæmdasjóði

Eitt verkefni á Suðurnesjum fékk styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2025 sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úthlutaði nýlega.

Sveitarfélagið Vogar – Staðarborg – ný og betri aðkoma. fékk 4.899.000 kr. styrk en hann felst í því að búa til bílastæði við upphaf gönguleiðar að Staðarborg, bæta merkingar og bæta þar með aðkomu og aðstöðu fyrir ferðamenn. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi, auka aðdráttarafl og vernda náttúru við nýjan áfangastað ferðamanna á Vatnsleysuströnd. Staðarborg er listilega hlaðin fjárborg á Strandarheiði, friðlýst sem menningarminjar og er auk þess einn af 55 jarðminjastöðum Reykjanesjarðvangs. Eins og staðan er núna eru nánast engir innviðir fyrir hendi. Staðarborg er hluti af áfangastaðaáætlun.

Að þessu sinni hlutu 28 verkefni styrk úr sjóðnum. Heildarúthlutun er 553,2 milljónir króna og dreifast verkefnin um land allt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Að venju snúa verkefnin að fjölbreyttri uppbyggingu, m.a. á sviði öryggismála, náttúruverndar, innviðauppbyggingar o.fl. Af þeim verkefnum sem fá styrk að þessu sinni eru 26 af 28 verkefnum skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis sem eru unnar heima í héraði á forsendum heimafólks.

Í úthlutuninni að þessu sinni var lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins tók mið af þessari áherslu. Af þeim 28 verkefnum sem hlutu styrk eru 10 á Austurlandi og 4 á Vestfjörðum en fæstir erlendir ferðamenn gista á þessum landssvæðum.