Hviða
Hviða

Fréttir

Sóknarsjóður veitir tutt­ugu at­vinnu­rek­end­um í Grinda­vík styrk
Hérastubbur bakarí er einn aðila sem fá styrk.
Miðvikudagur 28. október 2026 kl. 13:48

Sóknarsjóður veitir tutt­ugu at­vinnu­rek­end­um í Grinda­vík styrk

Byggðastofnun hefur úthlutað tæpum 67 milljónum króna úr Sóknarsjóði til 20 smærri atvinnurekenda í Grindavík. Flestir fá um 3,6 milljónir króna í styrk. Þetta er önnur úthlutun úr sjóðnum en í þeirri fyrri, í nóvember 2025, fengu 33 fyrirtæki samtals um 130 milljónir króna að því er kemur fram á grindavik.is.

Styrkirnir fara til kaupa á tækjum og búnaði og til breytinga á rekstri sem styrkja starfsemi í bænum. Meðal þeirra sem fá styrk eru veitingastaðir, ferðaþjónusta, flutningafyrirtæki, iðnaðarmenn, tannlæknastofa og Fisktækniskóli Íslands. Fjórtán þeirra fengu líka styrk í fyrri úthlutuninni og sex bætast nú við.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Áherslan í úthlutun hefur breyst frá fyrri umferðinni. Haustið 2025 mátti sækja um rekstrarstyrk til allt að sex mánaða og um styrk til að flytja starfsemi frá Grindavík. Nú eru eingöngu veittir styrkir til að byggja upp starfsemi í bænum.

Ríkisstjórnin ákvað í mars 2025 að styðja atvinnulíf í Grindavík og stofnaði Sóknarsjóð. Byggðastofnun sér um sjóðinn og féð kemur úr varasjóði byggðaáætlunar. Fyrirtæki og einstaklingar geta fengið styrk ef þeir voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023, daginn sem bærinn var rýmdur. Velta ársins 2023 þurfti að vera undir 250 milljónum króna og að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá.

Úr Sóknarsjóði hafa nú farið um 197 milljónir króna til atvinnulífs í Grindavík. 

Eftirfarandi aðilar hlutu styrk:

Njóttu ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Fjórhjólaævintýri ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Bryggjan Gastro ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

240 ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Hérastubbur ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 2.142 þús.kr.

Pepp ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

HP flutningar ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Fisktækniskóli Íslands ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

VK list ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 1.071 þús.kr.

Gistihúsgrindavíkur ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Torfhóll ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Rúnar Málari ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Guðlaugsson ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

PGV Framtíðarform ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.214 þús.kr.

Víkurfrakt ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Tannlæknastofa Grindavíkur ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.142 þús.kr.

VIGT ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Sæbýli rekstur ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Fishhouse ehf. hlýtur styrk að fjárhæð 3.570 þús.kr.

Bílakjarninn
Bílakjarninn