Segir uppbyggingu framúrskarandi heilbrigðisþjónustu framundan fyrir íbúa Suðurnesja
Rekstrarafkoma Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja var jákvæð um 149 milljónir króna
Alma Möller, heilbrigðisráðherra, sagði Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) vera eldspræka, fylgist vel með, hafa mikla aðlögunarhæfni og breytast í takt við nýja tíma. Þetta sagði Alma m.a. í ávarpi sem hún hélt á ársfundi HSS í síðustu viku. Alma þakkaði stjórnendum og starfsfólki HSS fyrir frábær störf, góðan árangur, og sagðist hlakka til að vinna með HSS á komandi misserum við uppbyggingu framúrskarandi heilbrigðisþjónustu fyrir íbúa Suðurnesja.

Heilbrigðisráðherra lofaði HSS á ársfundinum, sem haldinn var á Hótel Keflavík sl. föstudag, og nefndi margvíslegar áskoranir sem starfsfólk stofnunarinnar hefur þurft að takast á við og nefndi m.a. Reykjaneselda og þær hamfarir sem þar hafa verið, fyrst og fremst fyrir samfélagið í Grindavík.
Alma sagði það til eftirbreytni hvernig lýðheilsuvísar Landlæknis hafa verið nýttir sem mikilvægur grundvöllur við stefnumótun HSS og gott dæmi um hvernig hægt er að nýta lýðheilsuvísana á markvissan hátt og er til fyrirmyndar. Sama máli gegnir um virkt íbúasamráð og HSS hefur sýnt hvað slíkt samráð er gott og mikilvægt á báða bóga, fyrir íbúana og fyrir stofnunina og starfsfólkið.

Ársfundur HSS var vel sóttur en hann var m.a. opinn almenningi.
HSS hefur náð eftirtektarverðum árangri á undanförnu starfsári, bæði í rekstri og þjónustu við samfélagið. Þetta kemur fram í nýútgefinni ársskýrslu HSS fyrir árið 2024, þar sem dregin eru fram lykilatriði í vexti og umbótum á stofnuninni.
Rekstrarafkoma HSS var jákvæð um 149 milljónir króna, sem nemur 2,5% af tekjum. Tekist hefur að lækka uppsafnaðan halla stofnunarinnar um 14,1%, meðal annars með aukinni innheimtu, skilvirkari innkaupum og samstilltu átaki starfsfólks og stjórnenda. Tekjur jukust um rúm 26% á milli ára, en gjöld aðeins um 7,4%, sem endurspeglar bætta fjármálastjórn og rekstrarvitund.
Eitt stærsta framfaraskref ársins var aukin þjónusta á bráðamóttöku HSS, sem leiddi til þess að sjúkraflutningum til Landspítala fækkaði um 64%. Þá hefur HSS tekið í notkun byltingarkennda tækni í augnskimun með gervigreind í samstarfi við RetinaRisk. Með þessu er markvisst dregið úr kostnaði og bætt aðgengi fyrir stóran hóp skjólstæðinga með sykursýki.
Íbúar á Suðurnesjum nutu einnig bættrar þjónustu með opnun nýrrar heilsugæslu í Vogum og undirbúningi að opnun í Suðurnesjabæ nú í byrjun júní. Þá var unnin ný stefna HSS til 2030 með virkri þátttöku íbúa.

Jórunn Guðmundsdóttir átti gott samtal við Ölmu Möller, ráðherra. Kjartan Már brosir í baksýn.
Á starfsárinu voru einnig gerðar breytingar á skipuriti, lögð áhersla á öryggisfundi og unnið að umbótum í húsnæði. Áhersla á starfsánægju skilaði sér í hærri einkunnum í stofnanavísitölum en áður.

„Við höfum náð miklum árangri á stuttum tíma og ætlum að halda áfram að byggja traust og styrkja heilbrigðisþjónustuna á Suðurnesjum,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS, m.a. í ársskýrslunni.