Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Samfélagssjóður HS Orku styrkir björgunarsveitirnar á Suðurnesjum
Fimmtudagur 13. júní 2024 kl. 10:26

Samfélagssjóður HS Orku styrkir björgunarsveitirnar á Suðurnesjum

Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði HS Orku í fyrri úthlutun ársins 2024. Alls eru veittir fimmtán styrkir til fjölbreyttra samfélagsverkefna vítt og breytt um landið. Í maíúthlutun sjóðsins fá allar fimm björgunarsveitirnar á Suðurnesjum styrki til stuðnings því frábæra starfi sem sveitirnar hafa unnið á krefjandi tímum í landshlutanum.

Meðal annarra verkefna sem hljóta styrki eru verkefni Knattspyrnudeildar Keflavíkur sem snýr að virkni og vellíðan flóttafólks og hælisleitenda, Þekkingarþing hjá Þekkingarsetri Suðurnesja, menningartengd ferðaþjónusta við Hvalsnes og uppbygging útiaðstöðu við Verzlunarfélag Árneshrepps, sem og styrkur til Skotdeildar Keflavíkur til uppsetningar blýfangara á Hafnarheiði.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Næsta styrkúthlutun úr sjóðnum verður í október 2024 og tekið verður á móti umsóknum í gegnum umsóknarsvæði á vefsíðu HS Orku frá 1.-30. september næstkomandi.

Verkefni sem hljóta styrk úr Samfélagssjóði HS Orku í maí 2024:

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík
Björgunarsveitin Suðurnes
Björgunarsveitin Ægir í Garði
Björgunarsveitin Skyggnir í Vogum
Björgunarsveitin Sigurvon í Sandgerði
Knattspyrnudeild Keflavíkur – Virkni og vellíðan flóttafólks og hælisleitenda
Menningartengd ferðaþjónusta – Upplýsingaskilti við Hvalsnes
Þekkingarsetur Suðurnesja – Þekkingarþing 2024
Verzlunarfélag Árneshrepps – Útiaðstaða
Grjóthleðslunámskeið í Höfnum
Tónlistarfélagið Ellý – Tónleikaröð Ellýjar í Reykjanesbæ
Act Alone – Listahátíð á Suðureyri
Skotdeild Keflavíkur – Blýfangari á Hafnaheiði
Sjálfsbjörg – Kriki við Elliðavatn
Steinbogi – Tímaritið Skiphóll