Fréttir

Rýmingarflautur prófaðar og hvatt til rýmingaræfingar
Miðvikudagur 26. nóvember 2025 kl. 09:35

Rýmingarflautur prófaðar og hvatt til rýmingaræfingar

Í dag, miðvikudaginn 26. nóvember 2025, kl. 10:45 er fyrirhugað að prófa rýmingarflautur í Grindavík og Svartsengi. Þetta er gert til að prófa virkni fjarræsibúnaðar og handræsibúnaðar sem settur hefur verið við flauturnar og til að tryggja virkni búnaðar og hann virki sem skildi.

Athugið að flautur í Grindavík fara tvisvar í gang. Annars vegar með fjarræsingu og svo aftur í handræsingu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þeir aðilar sem eru á svæðinu eru hvattir til að taka létta rýmingaræfingu þá út úr húsum að minnsta kosti og fara yfir þær áætlanir sem þurfa reglulega uppfærslur í tengslum við rýmingu út úr Grindavík þar sem nú komumst við nær og nær næsta atburði.

Vettvangsstjórn í Grindavík verður með létta skrifborðsæfingu tengt flautuprófun.

Dubliner
Dubliner