Reyndi að komast framhjá eftirlitspósti lögreglu
Aðventueftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina gekk vel, að sögn lögreglu.
Alls voru á annað hundrað bifreiðar stöðvaðar og 115 ökumenn látnir blása. Af þeim voru 13 ökumenn skoðaðir nánar.
Í eftirlitinu var einn ökumaður stöðvaður og gert að hætta akstri. Þá var ein áminning veitt vegna öryggisbúnaðar barns og önnur fyrir að reyna að aka framhjá ölvunarpósti á vegöxl.
Lögreglan segist vera ánægð með útkomuna og þakkar ökumönnum fyrir gott samstarf, þolinmæði og ábyrgð í umferðinni.






