Fréttir

Öll 18 mánaða börn fá leikskólapláss í haust
Laugardagur 28. febrúar 2026 kl. 08:32

Öll 18 mánaða börn fá leikskólapláss í haust

Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir að öll 18 mánaða börn í sveitarfélaginu muni fá leikskólapláss þegar nýtt skólaár hefst í ágúst 2026. Þetta kom fram í bókun sem Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) lagði fram á fundi bæjarstjórnar 17. febrúar, í umræðu um stöðu leikskólamála.

Í bókuninni er vísað til greiningar þar sem fram kemur að heildarfjöldi leikskólaplássa verði 1.190 í vor, þegar leikskólinn Drekadalur verður fullbyggður fyrir 120 börn. Á sama tíma séu börn 18 mánaða og eldri alls 1.066. Þá kemur fram að 42 börn fædd 2024 hafi þegar hafið dvöl í leikskólum bæjarins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Meirihlutinn bendir á að leikskólabörnum hafi fjölgað úr 898 árið 2015 í 1.099 í dag, sem jafngildir 18% fjölgun á 11 árum. Þar með sé náð stórum áfanga fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ og árangurinn sé merki um markvissa uppbyggingu og ábyrga áætlanagerð. Jafnframt er lögð áhersla á að tryggja áfram faglegt starf og góða mönnun samhliða auknu aðgengi.

Í bókuninni er einnig greint frá áframhaldandi uppbyggingu: áformað er að byggja nýjan leikskóla í stað Garðasels, fyrstu skref í þriðja áfanga Stapaskóla séu að hefjast og jafnframt sé verið að rýna möguleika á stækkun annarra leikskóla.

Bókunina lögðu fram fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar.