Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Fréttir

Nýsköpunarsjóðurinn Kría opnar fyrir umsóknir í nýtt fjárfestingaátak
Sunnudagur 21. september 2025 kl. 06:10

Nýsköpunarsjóðurinn Kría opnar fyrir umsóknir í nýtt fjárfestingaátak

Nýsköpunarsjóðurinn Kría (NSK) hefur opnað fyrir umsóknir í nýtt fjárfestingaátak sem miðar að því að fjárfesta í sprotafyrirtækjum snemma á þróunarferli þeirra. Viðskiptahugmyndin sem félagið byggir á þarf að vera vænleg til vaxtar og útflutnings, félagið íslenskt og með starfsemi á Íslandi. 

Þá er það til framdráttar að lykilteymi félagsins skipi fjölbreyttur hópur með bakgrunn, reynslu og þekkingu sem nýtist vel við framgang félagsins. Félög af landsbyggðinni eru sérstaklega hvött til að sækja um fjárfestingu.  Þetta kemur fram í frétt frá Kríu.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Markmið átaksins er að flýta mótunarskeiði nýsköpunarfélaga og efla stjórnarhætti þeirra, laða  aðra fjárfesta að, auka englafjárfestingar, efla hugvitsgreinar og þekkingariðnað sem fjórðu stoðina í íslensku atvinnulífi alls staðar á landinu. 

Stefnt er að því að fjárfesta í 10-12 félögum og verður fjárfesting í hverju félagi á bilinu 20-30 milljónir króna. Ófrávíkjanlegt skilyrði er mótframlagsfjárfesting frá öðrum fjárfestum fyrir að lágmarki sömu fjárhæð og NSK fjárfestir.

Nánari upplýsingar og umsóknir     

Ólíkt hefðbundnum fjárfestingum Nýsköpunarsjóðsins Kríu verður í þessu átaki sérstakt umsóknarferli og þurfa félög að sækja um fyrir 20. október nk. Allar nánari upplýsingar um átakið og umsóknarferlið má finna á heimasíðu NSK, www.nyskopun.is/atak

Kynningarfundir um fjárfestingaátakið verða haldnir á Akureyri, í Reykjavík og með rafrænum hætti. Fyrsti kynningarfundurinn fer fram hjá DriftEA á Akureyri þann 25. september kl. 12:00. Næsti fundur verður haldinn í Fenjamýri í Grósku í Reykjavík þann 26. september kl. 13:00. Að auki verður haldinn rafrænn fundur þann 28. september sem og rafrænn fundur fyrir enskumælandi þann 1. Október. Allar nánari upplýsingar um viðburðina má finna hér.