Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Menntaráð ánægt með framgang Holtaskóla og Myllubakkaskóla
Fimmtudagur 26. febrúar 2026 kl. 10:10

Menntaráð ánægt með framgang Holtaskóla og Myllubakkaskóla

– hvetur til nýs leikskóla og niðurrifs Garðasels

Menntaráð Reykjanesbæjar fékk á fundi sínum 6. febrúar 2026 kynningu á stöðu framkvæmda á menntasviði. Hreinn Ágúst Kristinsson, deildarstjóri eignaumsýslu, mætti á fundinn og fór yfir stöðuna. Í bókun meirihluta menntaráðs er lýst ánægju með framvinduna í tveimur stórum verkefnum, uppbyggingu Holtaskóla og Myllubakkaskóla.

Jafnframt segir meirihlutinn mikilvægt að halda áfram uppbyggingu leikskólaplássa í Reykjanesbæ, bæði með því að fjölga plássum á núverandi leikskólum – þar er sérstaklega vísað til áforma við Skógarás og með uppbyggingu nýrra leikskóla.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Menntaráð hvetur til að ráðist verði sem fyrst í niðurrif leikskólans Garðasels og að hafinn verði undirbúningur hönnunar á nýjum leikskóla á sömu lóð.