Krónan
Krónan

Fréttir

Margrét Sanders hættir í pólitíkinni í Reykjanesbæ
Mánudagur 13. október 2025 kl. 09:45

Margrét Sanders hættir í pólitíkinni í Reykjanesbæ

Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ undanfarin átta ár, hefur ákveðið að hætta í pólitík og gefa ekki kost á sér í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor.

Margrét greindi frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum í gær. Hún segir það hafa verið bæði heiður og forréttindi að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ síðustu átta ár.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

„Traustið sem flokksmenn hafa sýnt mér síðustu ár hefur verið mér ómetanlegt en í síðasta prófkjöri fékk ég stuðning yfir 80% flokksmanna,“ segir Margrét í færslu sinni.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur notið mikils fylgis í Reykjanesbæ á þessum árum og hlotið flest atkvæði allra flokka í síðustu tveimur kosningum. Margrét þakkar bæjarbúum og samstarfsfólki fyrir traust og samstöðu og segir að starfið hafi verið bæði krefjandi og gefandi.

„Ég hef átt óteljandi góð samtöl við bæjarbúa, unnið með frábæru fólki og reynt mitt besta til að bæta samfélagið okkar,“ segir hún.

Margrét mun áfram gegna hlutverki oddvita fram að kosningum og segist styðja heils hugar þann sem tekur við keflinu.

„Ég hef fulla trú á því að flokkurinn komist aftur í meirihluta að loknum kosningum, enda þörf á. Sjálfstæðisflokkurinn stendur sterkur með skýra framtíðarsýn og ég hef trú á að ný forysta muni halda áfram að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið,“ segir hún ennfremur.

Margrét hyggst á næstu misserum einbeita sér að ráðgjafafyrirtækinu sínu, Strategíu, og þeim stjórnum sem hún situr í.

„Kærar þakkir fyrir traustið, samstarfið og samstöðuna í gegnum árin,“ segir Margrét Sanders að lokum.

Þá kom það fram um helgina að Vilhjálmur Árnason, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, liggur undir feldi og íhugar hvort hann bjóði sig fram í bæjarpólitíkinni fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjanesbæ í komandi kosningum.