Magnús Orri hlaut Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2025
Magnús Orri Arnarson er handhafi Hvatningarverðlauna ÖBÍ réttindasamtaka árið 2025. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti honum verðlaunin við hátíðlega athöfn á Hótel Reykjavík Grand í gær.
„Mamma ég gat þetta,“ voru fyrstu orð Magnúsar Orra eftir að niðurstaða dómnefndar var kynnt. Sagðist hann bæði ánægður og þakklátur. Verðlaunin séu mikill heiður fyrir sig sem kvikmyndaframleiðanda og þáttagerðarmann.
„Þetta sýnir að fatlað fólk getur gert hvað sem er,“ sagði Magnús Orri og hélt áfram:
„Ég byrjaði í kvikmyndagerð árið 2009 eftir að ég keppti á mínum fyrstu heimsleikum Special Olympics. Ég fékk tækifæri til að gera kynningarmyndband um leikana og þannig byrjaði boltinn að rúlla. Ég er ofboðslega þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem ég hef fengið. Takk fyrir fatlað fólk. Við getum gert allt sem við viljum.“
Magnús Orri hefur komið víða við, þótt hann sé rétt að byrja á sínu sviði. Nú síðast gaf hann út heimildarmyndina Sigur fyrir sjálfsmyndina þar sem keppendum á heimsleikum Special Olympics er fylgt eftir.
Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir var kynnir hátíðarinnar en hún fékk verðlaunin fyrir ári, ásamt þeim Sigfúsi Sveinbjörnssyni og Agnari Jóni Egilssyni.
Eftirfarandi voru einnig tilnefnd til verðlaunanna og fengu viðurkenningu:
Hákon Atli Bjarkason
Fyrir að vera frábær fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks.
Listvinnzlan
Fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra.
Sigurður Hólmar Jóhannesson
Fyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.






