Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Löggan kölluð til vegna ólyktar af gervinöglum
Fimmtudagur 5. september 2019 kl. 09:45

Löggan kölluð til vegna ólyktar af gervinöglum

Íbúar í fjölbýli á Suðurnesjum höfðu nýverið samband við lögreglu og kvörtuðu undan mjög sterkri og óþolandi vondri lykt í stigaganginum.  Þegar lögreglumenn mættu á staðinn reyndust íbúarnir síst hafa ýkt ástandið og kom fýlan frá tiltekinni íbúð. Íbúi hennar kom til dyra og kvaðst vera að setja gervineglur á stúlku þar inni og af því stafaði lyktin. Viðkomandi var vinsamlegast bent á að svona gæti þetta ekki gengið því nær ólíft væri í stigaganginum og íbúarnir kvörtuðu sáran. Konunni, sem um var að ræða, var jafnframt tilkynnt að Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja yrði gert viðvart og var það síðan gert.

Public deli
Public deli