Bilakjarninn
Bilakjarninn

Fréttir

Leitað eftir tilnefningum um fegurstu garðana
Smáratún 7 í Keflavík fékk verðlaun fyrir fallegan garð 2024. VF/hilmarbragi.
Laugardagur 12. júlí 2025 kl. 06:25

Leitað eftir tilnefningum um fegurstu garðana

Umhverfisviðurkenningar í Reykjanesbæ verða afhentar á Ljósanótt en Umhverfis- og skipulagsráð óskar eftir tilnefningum. Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um þá einstaklinga, garða, götur, svæði, stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki, sem þeim finnst koma til greina.

Ár hvert er veitt viðurkenning fyrir gróna garða, nýja garða og allt sem vel er gert. Einnig fyrir vel uppgerð eldri hús og undanfarin ár hafa verið veitt viðurkenning fyrir framlag til umhverfis og samfélags. Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningu á Betri Reykjanesbær, fyrir 4. ágúst.

Á kortavef Reykjanesbæjar (https://www.map.is/reykjanesbaer/) er hægt að sjá hverjir hafa hlotið umhverfisviðurkenningar frá árinu 2000. Íbúar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um viðurkenningar fyrir þann tíma.

Bílakjarninn
Bílakjarninn