Fréttir

Landsnet sendir ákvörðun Voga til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
Mánudagur 26. apríl 2021 kl. 11:17

Landsnet sendir ákvörðun Voga til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála

Landsnet hefur ákveðið að vísa ákvörðun Sveitarfélagsins Voga um að hafna umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Grindavík, Hafnarfjörður og Reykjanesbær höfðu áður samþykkt umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir sömu framkvæmd. Landsnet byggir kæru sína á því að öll skilyrði laga fyrir veitingu framkvæmdaleyfis hafi verið uppfyllt og því sé höfnun Voga ólögmæt auk þess sem hún vekur upp mörg álitamál sem nauðsynlegt er að fá skorið úr um, segir í tilkynningu frá Landsneti.

„Suðurnesjalína 2 er mikilvæg framkvæmd til að tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og hafa stjórnvöld sett svæðið í forgang við uppbyggingu flutningskerfisins enda öryggi raforkukerfisins á svæðinu ábótavant og mikilvægt að bæta þar úr sem fyrst. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan mun liggja um, og nær allir landeigendur, hafa samþykkt lagningu hennar. Ákvörðun Voga að hafna framkvæmdaleyfinu, þrátt fyrir að Landsnet hafi uppfyllt öll skilyrði fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis, voru því vonbrigði og setur verkefnið í uppnám“ segir Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ítarlegur undirbúningur og vandað samráðsferli

Umsóknir Landsnets um framkvæmdaleyfin fyrir Suðurnesjalínu 2 byggðu á samþykktri kerfisáætlun og ítarlegum undirbúningi þar sem lagt var mat á umhverfisáhrif ólíkra valkosta og hagsmunaaðilum tryggð aðkoma í gegnum vandað samráðsferli frá fyrstu stigum. Aðrar umsagnir, álit og leyfi liggja fyrir og samið hefur verið við langstærsta hluta landeigenda á línuleiðinni. Beitt var sömu aðferðafræði við umhverfismatið og var við undirbúning framkvæmda við Hólasandslínu 3 og Kröflulínu 3 sem ekki sættu kærum og framkvæmdir eru hafnar við.

Jarðstrengur ekki í samræmi við raforkulög

Loftlínuvalkosturinn sem sótt var um framkvæmdaleyfi fyrir tryggir best afhendingaröryggi raforku, af þeim kostum sem voru skoðaðir. Rannsóknir við undirbúning verkefnisins sýna að svæðið er útsett fyrir jarðskjálftum og eldgosum sem gerir það að verkum að jarðstrengskostur er ekki góður á þessu landsvæði. Hætta er á að hraunrennsli og miklar hreyfingar á landinu skemmi jarðstreng en loftlínur þola umtalsverða hreyfingu auk þess sem hægt er að verja möstrin fyrir hraunrennsli með varnargörðum. Líkurnar á því að unnt verði að tryggja öruggt rafmagn við erfiðar aðstæður á Reykjanesi eru því mun meiri með loftlínu.

Einnig felur jarðstrengsvalkostur í sér umtalsverðan viðbótarkostnað sem notendur raforku þyrftu að borga. Auk þess sem sá kostur fellur ekki að stefnu stjórnvalda um lagningu raflína í flutningskerfinu og er ekki í samræmi við raforkulög. Í ljósi þessa er Landsneti að lögum ekki heimilt að ráðast í dýrari framkvæmd enda hafi dómstólar komist að niðurstöðu um að líta beri til sjónarmiða um hagkvæmni og öryggi við ákvarðanir uppbyggingu flutningskerfisins, m.a. viðmiða stefnu stjórnvalda um lagningu raflína. Á því byggist m.a. ákvörðunin um að kæra höfnun Sveitarfélagsins Voga á framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2.