Landsbyggðarstrætó hættir með stoppistöðvar í Keflavík og Ásbrú - bæjarráð mótmælir
Bæjarráð Reykjanesbæjar telur að gríðarleg skerðing verði á þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar þann 1. janúar 2026 þegar stoppistöðvum mun fækka úr átta í tvær í sveitarfélaginu ef áætlanir Vegagerðarinnar ná fram að ganga um nýtt leiðakerfi landsbyggðarstrætó.
Vegagerðin telur þörf á að gera þessar breytingar þar sem illa gengur að halda tímaáætlun í akstri sökum þungrar umferðar á höfuðborgarsvæðinu. Breytingin felur í sér að engin stoppistöð verður í hverfi Keflavíkur eða Ásbrúar. Akstur innanbæjarstrætó hjá Reykjanesbæ hefst kl. 7:00 alla virka daga, sem þýðir að íbúa muni ekki geta tekið landsbyggðarstrætóinn fyrr en 7:45 frá miðstöð. Þessi breyting á tímatöflu Vegagerðarinnar felur í sér mjög alvarlega þjónustuskerðingu við íbúa Reykjanesbæjar sem sækja vinnu og nám á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum síðasta fimmtudag og telur óásættanlegt að ekki hafi verið tekið tillit til þeirra athugasemda sem komu fram á fundum sveitarfélaga á Suðurnesjum með Vegagerðinni í aðdraganda þessara breytinga og skorar á Vegagerðina að endurskoða breytingu þeirra á leiðarkerfi leiðar 55 í samráði við sveitarfélagið.