MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Kólígerlar greinast í neysluvatni í Vogum – Ekki þörf á að sjóða vatnið
Miðvikudagur 19. ágúst 2026 kl. 16:23

Kólígerlar greinast í neysluvatni í Vogum – Ekki þörf á að sjóða vatnið

Kólígerlar hafa greinst í sýnum úr dreifikerfi neysluvatns í Vogum við reglubundið eftirlit. Að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja er um vægt frávik að ræða og ekki er þörf á sérstökum ráðstöfunum af hálfu íbúa eða fyrirtækja; vatnið er öruggt og þarf ekki að sjóða.

Bakteríurnar greindust einungis í dreifikerfinu en hvorugt í vatnsbólinu sjálfu né greindust E. coli-bakteríur. Kólígerlar eru umhverfisbakteríur sem finnast í jarðvegi og geta stundum vaxið í lögnum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Sveitarfélagið vinnur nú í nánu samstarfi við HS Veitur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja að því að finna orsökina og gera viðeigandi úrbætur. Vikuleg sýnataka verður gerð á næstunni og hægt er að fylgjast með niðurstöðum á vefsíðu HS Veitna. Íbúar verða áfram upplýstir um framvindu málsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn