Kallar eftir 10 milljóna króna fjárveitingu svo ungmenni fái sumarvinnu
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Umbótar, skorar á meirihlutann í bæjarstjórn Reykjanesbæjar að tryggja 10 milljónir króna til að hægt verði að ráða 16–17 ára ungmenni í vinnuskóla bæjarins í sumar.
Á 700. fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sem haldinn var 16. júní, vakti Margrét máls á bréfi frá Ríkislögreglustjóra sem sent var sveitarfélögum með hvatningu um að bjóða ungmennum í þessum aldurshópi sumarvinnu. Hún sagði brýnt að brugðist yrði skjótt við og kallaði eftir pólitískum vilja til að fjármagna verkefnið. Kostnaðurinn er áætlaður um 10 milljónir króna.
Margrét lagði áherslu á mikilvægi verkefnisins sem hún sagði hafa mikið forvarnargildi. „Vinna fyrir þennan aldurshóp eflir tengsl þeirra við samfélagið og dregur úr áhættuhegðun og félagslegri einangrun,“ sagði hún í bókun sinni á fundinum.
Hún gagnrýndi að ekki hefði þegar verið brugðist við bréfinu, þrátt fyrir að fjárhagsáætlun hafi verið samþykkt í desember og erindið borist seint. „Það afsakar ekki að brugðist verði hratt og ábyrgðarfullt við þessu mikilvæga máli,“ sagði Margrét og bætti við að „það sem við veljum að fjármagna segir meira en öll loforð.“
Jafnframt hrósaði hún Helgu Jóhönnu Oddsdóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem hvatti fyrirtæki til að taka við þessum ungmennum í sumarvinnu í grein í Víkurfréttum. Margrét benti þó á að ábyrgðin ætti ekki að hvíla á einkaaðilum einum heldur bæri sveitarfélagið sjálft ábyrgð og ætti að ganga á undan með góðu fordæmi.
Erindi Ríkislögreglustjóra var áður tekið fyrir á 1520. fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar, þann 12. júní, þar sem Ólafur Bergur Ólafsson, forstöðumaður vinnuskólans, og Gunnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður Fjörheima og 88 hússins, mættu til fundar við ráðið. Þá var Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur, formanni bæjarráðs, falið að vinna áfram í málinu og finna mögulega lausn.