Júlíus Viggó kjörinn formaður ungra
Júlíus Viggó Ólafsson var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) á 48. þingi sambandsins, sem haldið var í Reykjavík um helgina. Tinna Eyvindardóttir og Anton Berg Sævarsson voru kjörin fyrsti og annar varaformaður. Engin mótframboð bárust í embætti formanns eða til stjórnar.
Í framboðsræðu sinni kynnti Júlíus jafnframt stefnu sína undir yfirskriftinni „Sjálfstæði fyrir nýja tíma“ og sagði að tími væri kominn til að sjálfstæðisstefnan fengi nýtt líf og skýrari stefnu. „Það er tímabært að sækja til hægri, endurvekja grunngildin okkar og standa með þeim,“ sagði hann.
Hann lagði áherslu á að ungt fólk innan SUS hefði mikilvægu hlutverki að gegna í því að móta stefnu flokksins og halda hugmyndafræðinni lifandi. „Við erum ekki bara aukaleikarar í Sjálfstæðisflokknum; við erum hugmyndafræðilegt hjarta hans,“ bætti hann við.
Júlíus boðaði jafnframt nýja tíma í starfi hreyfingarinnar og sagði SUS eiga að vera leiðandi afl innan flokksins. „SUS verður leiðandi í starfi Sjálfstæðisflokksins, framvarðarsveit sjálfstæðisstefnunnar. Með ykkar stuðningi boðum við sjálfstæði fyrir nýja tíma.“
Hann talaði jafnframt fyrir því að ríkið hyrfi af húsnæðismarkaði, að setja þyrfti skýrari stefnu í útlendingamálum og að berjast ætti gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Auk formanns og varaformanna hlutu eftirtaldir kjör til stjórnar:
-
Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir
-
Alda María Þórðardóttir
-
Atli Dagur Guðmundsson
-
Berglind Haraldsdóttir
-
Birkir Ólafsson
-
Birkir Óli Gunnarsson
-
Birkir Örn Þorsteinsson
-
Björn Gunnar Jónsson
-
Bríet Magnúsdóttir
-
Daníel Hjörvar Guðmundsson
-
Dóra Tómasdóttir
-
Einar Arnalds Kristjánsson
-
Einar Freyr Guðmundsson
-
Embla Kristín Blöndal Ásgeirsdóttir
-
Franklín Ernir Kristjánsson
-
Geir Zoega
-
Guðni Kjartansson
-
Halla Margrét Hilmarsdóttir
-
Halldór Lárusson
-
Helgi Rafn Bergþórsson
-
Hermann Borgar Jakobsson
-
Hermann Nökkvi Gunnarsson
-
Ísak Svavarsson
-
Jóhann Daði Gíslason
-
Kjartan Leifur Sigurðsson
-
Kristín Alda Jörgensdóttir
-
Logi Stefánsson
-
Logi Þór Ágústsson
-
Magnús Benediktsson
-
Oddur Stefánsson
-
Oliver Einar Nordquist
-
Pétur Orri Pétursson
-
Ragnheiður Arnarsdóttir
-
Signý Pála Pálsdóttir
-
Sóley Halldórsdóttir
-
Sölvi Guðmundsson
-
Sonja Dís Johnson Guðlaugsdóttir
-
Stephanie Sara Drífudóttir
-
Telma Ósk Þórhallsdóttir
-
Unnur Elín Sigursteinsdóttir