Hopp-hlaupahjól gætu verið á leiðinni í Voga
Lagt til að koma upp þremur stoppistöðvum
Íbúar og gestir í Vogum gætu senn átt von á nýjum samgöngumöguleika innan bæjarins, en unnið er að því að koma upp Hopp-hlaupahjólum í sveitarfélaginu. Umhverfis- og skipulagsnefnd lýsir yfir mikilli ánægju með hugmyndina.
Málið var tekið fyrir á nýlegum fundi nefndarinnar en þar mætti Joseph Feyen, eigandi Hopp í Reykjanesbæ, og kynnti tillögu að fyrirkomulagi og staðsetningu hjólanna í Vogum.
Sex hjól og þrjár stoppistöðvar
Samkvæmt kynntri tillögu er miðað við að koma fyrir sex hjólum á þremur stoppistöðvum innan sveitarfélagsins.
Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur sérstaklega vel í erindið og segist líta nýja samgöngumöguleika innan bæjarins mjög jákvæðum augum. Nefndin hefur lagt til eftirfarandi staðsetningar fyrir stoppistöðvar:
- Við bæjarskrifstofuna að Iðndal 4.
- Sitthvor stöðin við strætóskýlin við Reykjanesbraut.
Formlegri og endanlegri afgreiðslu málsins hefur nú verið vísað til bæjarráðs, en ef allt gengur eftir styttist í að íbúar geti geyst um bæinn á rafhlaupahjólum.






